Vísindaveisla Háskólalestarinnar var haldin á Egilsstöðum laugardaginn 26. maí 2018. Vísindavefur HÍ lagði þar þrautir fyrir íbúa Egilsstaða og aðra gesti.
Í þetta skiptið voru þrautirnar átta talsins. Flestum tókst að raða saman teningnum en fæstir réðu við Gátu Einsteins.
Þær Tinna Sóley Hafliðadóttir og ...
Hvaða tala er næst í talnarununni?
1
2
720
?
Hægt er að senda inn lausn á gátunni á þetta netfang. Svar við gátunni verður svo birt í næstu viku, ásamt nöfnum þeirra sem sendu inn réttar lausnir.
Lausn við gátunni, ásamt nöfnum þeirra sem sendu inn réttar lausnir, hefur nú verið birt hér.
...
Þú ert staddur á eyju sem staðsett er í miðju stöðuvatni. Engin brú tengir eyjuna við land og raunar hefur aldrei verið brú þar á milli.
Á hverjum degi ekur traktor með hey um eyjuna á vagni sem við hann er tengdur. Það er svo sem ekki frásögum færandi nema fyrir þær sakir að þér er tjáð að traktorinn hafi hvo...
Segjum sem svo að þú viljir senda mjög verðmætan hlut í pósti til vinar þíns. Þú átt öskju sem rúmar hlutinn en á öskjunni er einnig haldfang. Haldfangið virkar þannig að ef lás er settur utan um það er ekki unnt að opna öskjuna.
Þar sem um verðmætan hlut er að ræða er mikilvægt að hafa öskjuna læsta. Aftur á ...
Heili Einsteins var breiðari en heilar úr öðrum mönnum en hins vegar ívið léttari. Óvenjulegt mynstur fannst á því svæði heilans sem tengist hæfni í stærðfræði og rúmfræði. Taugafrumur á ákveðnum stöðum virtust líka liggja þéttar saman en venjulegt er. Frekari rannsóknir væru þó æskilegar til að staðfesta þetta be...
Þann 6. nóvember 1919 var haldinn fundur sem átti eftir að hafa mikla þýðingu fyrir Albert Einstein og viðtökurnar á kenningum hans. Að fundinum stóðu tvö félög, Konunglega breska vísindafélagið (the Royal Society) og Konunglega breska stjarnfræðifélagið (the Royal Astronomical Society). Fundarstjóri var forseti V...
Þeir tveir hlutir sem eru hvað algengastir á vinnustöðum landsins eru kaffibollar og pennar. Því er eftirfarandi þraut tilvalin til að brjóta upp vinnuna í amstri dagsins.
Á myndinni hér að neðan má sjá hvernig uppstillingin er. Markmiðið er að koma bollanum út fyrir formið sem pennarnir mynda án þess að færa ...
Tvær járnbrautarlestir leggja af stað á sama tíma, önnur frá stað A en hin frá stað B. Báðar ferðast þær með hraðanum 50 km/klst og 100 km eru milli staðanna. Járnbrautin liggur eftir beinni línu.
Býfluga leggur einnig af stað frá stað A á sama tíma og lestin og flýgur meðfram járnbrautarteinunum í átt að s...
Maður stendur frammi á gangi þar sem þrír tölusettir rofar (1, 2 og 3) eru á veggnum. Í lokuðu herbergi rétt hjá rofunum eru þrjár ljósaperur merktar með bókstöfunum A, B og C. Verkefni mannsins er að finna hvaða rofi gengur að hvaða ljósaperu. Maðurinn hefur endalausan tíma en þegar hann hefur opnað dyrnar verður...
Nokkuð hefur verið ritað um Einstein og framlag hans til vísindanna hér á Vísindavefnum, enda ástæða til þar sem hann var einn fremsti eðlisfræðingur allra tíma.
Hingað til hefur hins vegar ekki verið fjallað hér um kynhneigð Einsteins og er ástæðan einfaldlega að hún skiptir harla litlu máli í samanburði við k...
Garðar hafði klárað skurðarbrettið sitt í smíði á undan hinum krökkunum svo Smári smíðakennari lét hann fá annað verkefni. Smári hafði mjög gaman af stærðfræðiþrautum og vissi að Garðar var lunkinn við að leysa slíkar þrautir. Þrautin sem Garðar fékk var að láta stærðfræðidæmið sem Smári hafði sett upp með skrúfum...
Haraldur og Sigurður eru mikið fyrir ýmiss konar þrautir en þeir skiptast gjarnan á og leggja þrautir hvor fyrir annan.
Nú er komið að honum Haraldi. Hann tekur tvær tómar hálfslítra plastflöskur og fyllir þær af vatni. Því næst nær hann í skúringafötu og segir við Sigurð:Þú þarft að tæma úr báðum plastflöskun...
Til eru fjölmörg afbrigði af þessari gátu. Mjög vinsælt er að leggja hana fyrir nema í rökfræði og heimspeki, eða bara gesti og gangandi, því svarið við henni er ekki augljóst og þarfnast nokkurrar útsjónarsemi.
Þeir sem vilja reyna við gátuna ættu endilega að gera það, hinir sem vilja lesa áfram geta skrunað n...
Lágvaxinn maður býr á 10. hæð í blokk. Þegar hann kemur heim úr vinnunni tekur hann alltaf lyftuna upp á 9. hæð nema þegar rignir. Þá fer hann alla leið upp á 10. hæð með lyftunni.
Hvernig stendur á því?
Hægt er að senda inn lausn á gátunni á þetta netfang. Svar við gátunni verður svo birt í næstu viku, ásam...
Soldán nokkur í Mið-Austurlöndum situr í fjárhvelfingu sinni og horfir með velþóknun á tólf poka, sem hver og einn er fullur af stórum silfurpeningum. Sérhver pokanna er kominn frá einum héraðsstjóra sem skattur og hver poki er merktur með nafni héraðsstjórans. Hver silfurpeningur á, samkvæmt skipun soldánsins, að...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!